góðann daginn... ég ákvað svona fyrst ég hafði ekkert að gera að blogga kannski einu sinni eða svo... en það hefur þó nokkuð gerst síðan að ég bloggaði síðast... Pákarnir voru fínir bara, ég fór í löndun í tvo daga og svo var því bara tekið rólega... farið heim í sveit og hitt ættingja auk þess sem ég komst loksins á snjósleða... :D svo var ég að vinna um páskahelgina, en sem náði þó að redda mér fríi á páskadagskvöldinu og fór á djammið... þetta var ágætist kvöld svo sem... síðan hefur skólinn verið að gera það sem hann gerir best... það er svolítið um verkefni þessa stundina... ég hemmi og elmar gerðum auglýsingu um Subaru Justy í auglýsingasálfræði... ótrúlega góð auglýsing að mínu mati miðað við að við höfum aldrei gert þetta áður... síðan erum við bara að gera eitt verkefni í uppeldisfræði sem er ekki nema 100% þannig að ef að það klikkar erum við kúk fallnir... en ég hugsa nú að maður komist í gegnum þetta, vorum einmitt að taka könnun áðan fyrir þetta verkefni... annars er lítið að gerast þessa stundina, er víst að fara í sjallann á morgun að skemmta mér.. það verður sjálfsagt ágætt... :) annars á ég að vera að gera verkefni núna en við hemmi erum ekki að nenna því svo hann er á mbl og les fyrir mig fréttirnar meðan að ég er að blogga... t.d. var hann að lesa fyrir mig að albinóar eru drepnir í tanzaníu af einhverju galdralæknum, og síðan grafnir því þeir trúa því, galdralæknarnir, að það færi þeim meiri gæfu eða eitthvað álíka... frekar ógeðslegt en samt að gerast í þessum heimi... annars ætla ég ekki að fara að hafa tölu um það hvað er að gerast í þessum heimi, því það er svo margt og fólk er ekki að átta sig á því... en ég hugsa að ég segi þetta gott í bili,
Böðvar
04. apríl 2008 klukkan 13:58
Böðvar Jónsson 3 athugasemdir
heyrðu já, bloggleysi í fyrirrúmi en sein kemur sumt en kemur þó... <
>svona í tilefni dagsins, aðallega þó af því að ég hef ekkert að gera, ákvað ég að blogga... það er langt síðan ég dritaði síðast línum á þessa annars ágætu síðu svo ég get sagt ykkur frá heilmiklu sem á daga mína hefur drifið... en ég er að hugsa um að sleppa því... ég ætla að stikla á stóru svona eins og: ég átti afmæli 10 janúra(vúhú) og kallinn bara orðinn tvítugur(vúhú) og eyddi deginum í að læra fyrir próf(vúhú)... svo annað eins og: ég er búinn í prófum í MA(vúhú) og ég náði öllu(vúhú)... en ég fór á þorrablót á föstudaginn síðasta, var driver, og það er eitt af því sem ég er að hugsa um að gera aldrei aftur þegar það er þorrablót... ég skemmti mér alveg ágætlega, sérstaklega þó þegar ég átti að dansa við ragnhildi þar sem hún svo eftirminnilega varð vitlaust yfir ekki neinu... það var gaman... þeir sem vilja sjá það live þá getið þið hringt í mig, borgað 1000 krónur og ég tek atriðið fyrir ykkur, þið fáið afslátt ef þið eruð fleiri en eitt... ég fór á djammið svo á laugardaginn... sixties voru góðir sko... þið sjáið að ég er strax farinn að hegða mér eins og gamalt fólk, fer á sixties... :D en þeir voru mjög góðir, skemmti mér alveg konunglega... nú er bara legið í leti heima í sveit, fer að fara í það að leita mér að vinnu fyrir sumarið... en næst á dagskrá hjá mér er þorrablót hér heima í sveit, vá hvað verður gaman... ég hlakka svo til... annars hef ég ekkert að segja í rauninni, Dagný reyndar, eins og flestir kannski vita, er að fara á kostum í klámbransanum... ótrúlegt hvað rauðhærðu fólki dettur í hug, að láta cum-a í andlitið á sér... ,,hægra augað takk fyrir "... siggi er orðinn heitasti drengurinn í bænum, hjá dansunnendum, því hann náði að halda dansgólfinu á Amour fullu allt kvöldið, sjáum til hvernig það gengur hjá honum á laugardaginn næsta...vonum allavega að það gangi vel... annars hlýtur þetta að vera komið gott... þannig að, Sunna, Gunni og Árný! hættið að kvarta!!!
ég vil þakka þeim sem hlýddu á, hljóðið
Böðvar >
28. janúar 2008 klukkan 19:58
Böðvar Jónsson 5 athugasemdir
Lögfræði... Jújú sit hér í lögfræði að ræða um skiptingu arfs, gífurlega skemmtilegt og gefandi... haha... en allavega, árshátíð Menntaskólans á Akureyri er á næsta leyti, eða réttara sagt á föstudaginn næsta... ég er farinn að hlakka til, held að þetta verði bara mjög gaman... er ekki eins bjartsýnn með ballið en ég lít á það björtum augum og vona það besta, hef nú ekki mikið hlustað á þessa hljómsveit svo ég ætla ekki að mynda mér neina skoðun... fyrir tveimur helgum fór ég heim í sveit á árshátíð gamla skólans, ég skemmti mér mjög vel, alltaf gaman að fara á árshátíð og fylgjast með því einu sinni var maður jú partur af þessu... systir mín söng lag sem var bara vel gert hjá henni að mínu mati, ekki oft sem ég hæli henni... en á laugardaginn er ég svo að fara í Mývatnssveit á jólahlaðborð með sumarvinnunni minni... það verður fínt, var boðið í fyrra líka og þá fannst mér mjög gaman... annað hef ég nú ekkert að segja, búið að vera brjááálað að gera og ég sé ekki alveg fyrir endann á því ennþá... ég hélt að fjórða árið yrði nokkuð létt en svo er ekki, biluð verkefnavinna... aaahhhh... svo fer ég ekki í jólafrí fyrr en 20 held ég og byrja örugglega 3 jan... ég mun síðan eyða afmælisdeginum mínum í það að læra undir fyrsta prófið og jafnvel mun síðasta prófið færast framfyrir og þá mun ég halda upp á afmælið mitt með því að mæta í próf... jeij, ég er svo ánægður með þetta, eða ekki... helvítis helvíti... gott í bili
kv. Böðvar
27. nóvember 2007 klukkan 12:46
Böðvar Jónsson 10 athugasemdir
já, ég er búinn að vera lélegur í blogginu að undanförnu en kem þó annað slagið inn með blogg... málið er það að ég hef bara svo lítið að segja... en lífið heldur áfram sinn vanalega gang... Vistin í Brekkugötunni er með eindæmum góð og gaman frá því að segja þá vorum við að fá okkur sýn 2... en allavega, síðasta fimmtudag og föstudag var frí í skólanum eins og allir menntskælingar vita, ef ekki þá þarf að kíkja á ykkur... ég fór heim í sveit og var að vinna hjá pabba... það var fínt að komast í sveitina og rólegheitin... síðan var ég bara að vinna í sjallanum á föstudagskvöldið... mættu ekkert rosalega margir, átti von á fleirum en kvöldið fór þó vel fram... Sunnudaginn fór ég í leikhús á Óvitar, ég var virkilega ánægður með þessa sýningu og það var ótrúlega gaman að sjá hversu góðir krakkarnir voru... eftir það spiluðum við Siggi PES í 2 og 1/2 klukkutíma.... í gær byrjaði ég á dyravarðanámskeiði... Bekkurinn er að fara í skála á miðvikudaginn, ég og Rambó komum seinna því við verðum á námskeiðinu um kvöldið... gæti verið að þetta verði alveg ágætt, kemur allt í ljós, og þá er ég að tala um skálaferðina... en um helgina er það sveitin góða því þar verður gangnamannakvöld... hitta kallana og rifja upp göngur er ólýsanlega skemmtilegt... það er ótrúlega margt sem gerist í göngum sem ekki er hægt að lýsa fyrir þeim sem ekki eru í göngum eða aldrei hafa farið... annars ætla ég ekki að fara að hafa þetta lengra, hugsa að ég sé búinn að rugla nóg í þetta skipti...
kv. Böðvar
06. nóvember 2007 klukkan 10:24
Böðvar Jónsson 5 athugasemdir
já, svona er lífið... skólinn gengur sinn vanagang þó svo ég hafi litla hugmynd um það hvað um er að vera hér... en allavega í síðustu viku fór ég, á þriðjudaginn og miðvikudaginn, í göngur fyrir gumma frænda... djöfull anskoti sem það var gaman... svo ég fari hratt yfir sögu þá: -fór heim á mánudag og fékk gott að borða og tók mig til. -mætti til gumma korter í 8 og við vorum lagðir af stað um 8 með tvo hesta. -sá engann mann fyrsta daginn og enga kind fyrr en komið var í kofa. smalaðist mjög vel í fyrstu göngum. -kvöldvaka og gleðskapur, altarisganga og málefnalegar umræður. -vaknað 7 og lagt í hann um 8. -á var látinn hlaupa 5-6 km. í svokölluðu gjástykki. -fór að smugunni svokölluðu á milli gamla hraunsins og nýja hraunsins. -komum niður í aðhald um eitt leitið og hvíldum í klukkutíma. -lögðum af stað heim, og drukkum. -sáum fjórar kindur sem ég, gummi frændi, sæsi frændi og lúlli fórum á eftir. -lengdum leiðina um 2 klukkutíma því við lágum í vegkanntinum með kindurnar og drukkum bjór. -Sunna kom á mót okkur og lenti á spjalli við gumma og sæsa frænda. hahaha.... - við fórum svo inneftir um 9 leitið eða eitthvað, man það ekki sökum þreytu....:D annars var ég bara rólegur um helgina... við birkir hittumst og fórum í bíó og síðan á kaffi ak með nokkrum úr sjallanum... og svo var ég að vinna á laugardeginum, nokkuð um pústra og einn alveg trítilóðann... þannig að, edrú helgi hjá mér og stefni á aðra eins og staðan er núna... vúhú.... :D annars er alveg kominn tími á djamm, partý heima eða eitthvað...:D komið gott í bili. Böðvar
08. október 2007 klukkan 13:07
Böðvar Jónsson 9 athugasemdir
komið þið sæl... eins og hausinn gefur til kynna þér er ég kominn heim frá Rhodos og er byrjaður í skólanum.... ég ætla ekki að koma með einhverja ferðasögu en er að hugsa um að segja kannski frá nokkrum hlutum sem ég gerði þarna úti.... -fór í dagsferð um gamlabæinn í Rhodosborg... ótrlega gaman en það kom mér á óvart hversu sóðalegt það er þarna miðað við að þetta er ferðamannastaður... -fór í dagsferð til Tyrklands, réttara sagt marmaris... fór á tískusýningu og í skartgripabúð og síðan í einhverja verslunargötu þar sem eru yfir 2000 búðir, en jesús minn, flest allar þeirra eru eins... þetta var rosalega gaman en það er ótrúlega erfitt að vera í öllu þessu áreiti.... -fór í waterpark á faliraki sem er strönd á rhodos... var alveg að missa mig... ætlaði ekki að þora í einhverjar 3 brautir en strákarnir drógu mig í þær strax til að byrja með svo ég var klár í flestann sjó eftir það... haha... - fór í köfun sem var algjör snilld... á tvær myndir af mér sem ég reyni að skella hér inn við tækifæri... en þetta var allavega alveg ótrúlega gaman.... -súpersigling farið upp í bát og stoppað á fjórum stöðum á nokkurra klukkutíma siglingu til að stökkva út í sjóinn... síðan þurftum við að synda í land í hádegismatinn... -skemmtileg gata sem kölluð er bar street var grimmt könnuð á kvöldin... ótrúlega margir barir þar og mikið af fólki... -flugið okkar seinkaði ekki nema um rúma 13 tíma sem er svo sem ekki neitt, þar sem að rúmlega 170 krakkar fengu 5 herbergi til að leggja sig í og svo lobbýið yfir daginn... vúhú...:D en ég skemmti mér alveg ágætlega.... vitið þið það að ég nenni ekki að skrifa meira um þessa ferð... hef held ég aldrei skemmt mér jafn vel í jafn langann tíma... þetta verð geðtryllt eins og við köllum það....
en ég þakka fyrir mig kv. Böðvar
20. september 2007 klukkan 15:18
Böðvar Jónsson 8 athugasemdir
já ágætu blogglesendur, Böðvar hefur ákveðið að segja aðeins frá því sem á daga hans hefur drifið undanfarna mánuði... ég er búinn að vinna svolítið mikið þó ég segi sjálfur frá, bæði á norðupólnum og í sjallanum... ég ætla að byrja á því að segja frá síðustu helginni í júli þar sem að ég man ekki lengra aftur, een hún byrjaði á fimmtudegi hjá mér með því að spila fótbolta með greifunum á akureyri í utandeildinni... það var þrusu gaman en leikurinn endaði með 1-1 jafntefli... morguninn eftir, réttara sagt um 7 leitið vaknaði ég alveg ótrúlega þreyttur því ég var á leið til Grímseyjar með sjallastarfsfólkinu... fyrsti bjór var opnaður fyrir utan sjallan svolítið fyrir átta því ég og ástþór ætluðum sko ekki að keyra til Dalvíkur.. síðan var lagt af stað út í eyju og þangað komið 4 tímum seinna... staffið á Amour var líka með í för... en, við fórum svo hring í kringum eyjuna á bát og ég keypti, ásamt nokkrum öðrum, þetta dýrindis kort sem sannar að ég hef farið yfir heimskautsbaug, en því miður veit ég ekki hvar það er... síðan var bara slappað af og drukkinn bjór allan daginn... við ástþór vorum hálf pirraðir yfir því að vera búnir að drekka allan daginn en ekki farnir að finna á okkur... um kvöldið var svo dýryndis matarveisla... þá þurfti nú að fara að ná upp ölvun fyrir ball... ég ætlaði að fá að leggja mig en vegna afskiptasemi í úllu komst það ekki í verk... ég fór því og tók mig til ásamt ástþóri og svo opnuðum við Vodkaflöskuna mína og stútuðum henni tveimur tímum, eekki meira, ásamt ómældu magni af bjór... gaman að segja frá því að reynt var að fara í drykkjuleik nema ég hætti snemma því maður fékk aldrei að drekka í honum og sem betur fer komu e-r eyjaskeggjar með gítar og það var bara spilað og sungið fram að balli, þar sem ég skemmti mér ótrúlega vel... ferðin heim daginn eftir tók tíma en góð engu að síður... ég fór svo á mærudaga á húsavík um kvöldið svo lítið var sofið þessa helgi... helgin eftir var svo versló... ég fékk að djamma á föstudeginum því allir vildu vinna þá, og hitti ég eyjó og kidda sem var mjög gaman... laugardagurinn fór í smá þynku og holugröft fyrir palli hjá Bjössa frænda... síðan var vinna um kvöldið... þar gerðist eitt atvik sem mun lengi vera í minnum þeirra dyravarða sem voru á svæðinu, en svoleiðis er mál með vexti að ég og logi vorum í hurðinni og e-r strákur ætlar að labba inn við ýtum á hann og þá koma 3 vinir hans í viðbót og ýta á móti, ástþór kom og sér þetta og ýtir með okkur og erum við að ná þeim út þegar að ég er við það að detta en næ að stökkva upp undan þvögunni og ýta í kassann á einum við útidyrnar... hann grípur um barkann á mér sem ég var snöggur að losa en þá rífur hann í bolinn minn og byrjar að toga, og fyrr en varði var ég orðinn ber að ofan að slást við einhverja gaura úti á götu... löggan kom mjög fljótlega og það var ekki að spurja að því en ein löggan stekkur beint á mig... haha... annað gerðist nú ekki up helgina nema það að ég var að vinna á sunnudagskvöldið líka... um síðustu helgi setti ég nokkra plastkuppa saman og svo steiptum við á laugardagsmorgninum... ég fór síðan inneftir að hjálpa bjössa og um kvöldið kíkti ég ásamt sunnu, antoni, selmu og lísu á dalvík... þar hitti ég minn ástkæra hemma, elmar, hannes, tinni , dagný, magneu og bryndísi... annað er nú ekki að frétta nema það að ég get ekki farið í vinnu á morgun og mjög líklega ekki út þessa viku því ég skar í puttann á mér og læknirinn ákvað að setja spelku utan um hann til að gera mig óvinnuhæfan... arrrrggg.... þannig að ef þið sjáið augsýnilegar innsláttarvillur þá er það puttanum að kenna... :D en ég kveð að sinni, veit ekki hvort ég nenni að blogga fyrir rhodos en það kemur þá eitt eftir það...:D kv. Böðvar
14. ágúst 2007 klukkan 22:06
Böðvar Jónsson 6 athugasemdir
ágætu fætur(ekki hálsar) haha... bramm tish!!!! byrja þetta á botninum svo það geti ekki versnað...:D en margt hefur á daga mína drifið síðan ég ritaði síðast hér á veraldarvefinn... ég fór í upptökupróf úr sögu, fékk fínar glósur og náði þessu með glæsilegri 7u... var ótrúlega ánægður en allir sem ég þekki sem voru í þessu upptökuprófi fengu 7 svo þetta var sjálfsagt ekkert svo glæsilegt hjá mér, ég meina, sumargjöf eða eitthvað...:D síðan tók vinnan við, ég var búinn að vinna í 10 mín þegar hringt var í mig og spurt hvort ég gæti farið á sjó eftir sólarhring... leiðindi það... en svona er það bara... ég og siggi erum búnir að vera með leikjanámskeið fyrir krakka á aldrinum 4-10 ára 3 í viku... síðasta skiptið var í dag svo við buðum foreldrum með og grilluðum svo ofan í mannskapinn...:D fótboltaæfingar eru búnar að vera fáar hjá mér í sumar, búinn að þjálfa einu sinni og mæta sjálfur á 3 held ég... :S en stefnan er tekin á að breyta því og fara að mæta... :D það nálgast í mót hjá okkur "gömlu" köllunum svo maður þarf að fara að hrista spikið í smá stund og mæta svo galvaskur á mótið... :D ég er að vinna með gömlum vaxtarræktarkalli og hann er að kenna mér einhverjar pósur, svona sem við tökum uppi í stillansinum þegar ég er að pissa á mig af hræðslu(hann líka) þá tökum við smá pós... vinsælasta pósan er klárlega sú sem við kjósum að kalla Atlas... haha... gaman að segja frá því að ég eldaði kvöldverð fyrir tvo í gistiheimilinu okkar um daginn... ég er að æfa mig fyrir komandi vetur þar sem maður þarf að fara að elda sér sjálfur og ég nenni ekki að lifa á sjoppufæði, er kominn með algjört ógeð á því... svo er aldrei að vita nema matarboð verði haldin í brekkugötu... þar að segja ef húsið sem ég er að fara að leigja er í brekkugötu, ég er bara ekki viss... nú er helgi, það sama hér aftur og aftur, bruna inneftir til að vinna... var að hugsa um að slá tvær jafnvel þrjár eða fjórar flugur í einu höggi núna og hitta kannski á einhverja vini, skella mér jafnvel í ræktina og svona... gaman að segja frá því að Snædís mín átti afmæli í gær, þar að segja föstudaginn 29. júní... hrukkurnar eru farnar að sjást á henni, það verða ekki allir síungir eins og ég... :D hahaha... en ég ætla að kalla þetta gott, farinn að rugla eitthvað...:S
kv. Böðvar
30. júní 2007 klukkan 00:24
Böðvar Jónsson 3 athugasemdir
Góðir hálsar, ég er kominn í sumarfrí... það byrjaði í dag eftir enskuprófið en það endist nú svo sem ekki lengi þar sem hin prófavikan mín byrjar á þriðjudaginn... annars er nú lítið að frétta, verð að vinna mikið í sumar (segir maður það ekki alltaf?) verð í boltanum, reyna að losna við smá fitu... ;) og svo reyna að lyfta eitthvað líka, helvítis rækt á Húsavík... ég er búinn að frétta að hún eigi að vera lokuð yfir sumartímann... svo er það það nýjasta að ég held að gleðibekkurinn 3.G sé orðinn veikur, svona eins og hann leggur sig, því ekkert djamm er í kvöld á þeim krökkum sem eru búnir í prófum... ég lýsi yfir neiðarástandi og vil biðja um sprautu fyrir bekkinn eins og hann leggur sig... pannt tvo skammta... ;) helst er það í fréttum að:
Snædís var edrú tvær helgar í röð... eina skíringin sem kemur til greina er að hún var hlekkjuð föst niður í kjallara þessar umræddu helgar...
Ragga Hólm kom brosandi og sæl út úr heimspekiprófinu og er ekki búin að halda vatni yfir því að fá að fara í annað próf með Sigurði Ólafs...
Kaffidrykkja var yfir meðallagi á vistinni síðustu vikuna í prófatíðinni, ótrúlegt hvað kaffi er gott...
mér tókst sjálfum að fara heljarstökk á trampólíni, í annarri tilraun... í þeirri fyrri endaði ég hálfur út í runna...
Böðvari Jónssyni sem er ekki sá bjartsýnasti í prófum, tókst að halda uppbyggjandi ræðu fyrir Sigurð Marteinsson fyrir íslenskuprófið... tekið verður við verðlaunum milli 12-12.15 á morgun...
Myndin í bannernum er uppáhalds myndin mín núna... hélt gleðiglætu í hugamínum meðan þessir myrku tímar(prófavikan) áttu sér stað...
Annars er ég ekki alveg kominn í þann gír að geta bullað eitthvað ennþá... of stutt síðan prófin kláruðust og heilinn ekki kominn á rétt ról... annars ætla ég bara að óska öllum þeim sem eru komnir í sumarfrí til hamingju með það, og þeim sem fara í það aðeins seinna... þakka 3.G kærlega fyrir veturinn, þetta er búið að vera geðveikt og leiðinlegt að það eigi að splitta okkur upp...
kv. Böðvar
05. júní 2007 klukkan 22:59
Böðvar Jónsson 8 athugasemdir
Það vantar eitthvað í konur, hún er eins og "ófullkominn karlmaður"... við æxlun er konan óvirk og þiggjandi en karlinn virkur og gefandi, þannig að barnið erfir eingöngu eiginleika föðursins. konan er eins og frjómold sem aðeins tekur á móti og nærir sáðkornið en karlinn er sjálfur "sáðmaðurinn"... þetta var skoðun Aristótelesar og þetta er það eina sem ég kann í heimspekinni, kannski af því að ég hef nokkrum sinnum sagt að karlinn býr til deigið en konan er bakaraofninn... því miður verð ég ekki að vera sammála Aristótelesi merkilegt hnokk þar sem ég er kallaður karlremba, ég vil mótmæla þeim sögusögnum... ég ætla ekki að koma með einhverja rökfærslu með því, það endar bara með einhverju rosalega flóknum orðum sem ég fann í heimspekibókinni og skil ekki... ;) en allavega, ég er gegnum sýrður af heimspeki núna, skil ekki neitt en er búinn að lesa helling... hversu ömurlegt er það? ætla að enda þetta leiðinlega blogg á enn leiðinlegum "leik"... haha... finn allt til að læra ekki... hér kemur það:
Aldrei í lífi mínu: segja aldrei, ég meina, maður veit aldrei...
Menntaskólaárin voru: þau sem búin eru, eru búin að vera virkilega góð, stefnir í eitt aukaár... :)
Ég hitti einu sinni: meistara Hasselhoff, við duttum í það saman og gerðum margt af okkur milli þess sem við lékum saman í hrikalegri spennumynd... versta var að ég vaknaði svo...
Einu sinni þegar ég var á bar: Drakk ég rosalega mikið, Árný kannski veit um hvað ég er að tala, en það var gott djamm... að mig minnir... var það ekki Árný?
Síðastliðna nótt: var ég að vinna, DJ Palli í sjallanum, hörku fjör og gerðist nokkuð sem ég átti ekki von á að þurfa að vera áhorfandi af... hvað þá að skipta mér af því...
Næsta skipti sem ég fer í kirkju: laugardaginn, jarðarför frænda míns... blessuð sé minning hans...
Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég: sé ég röggu ÓTRÚLEGA druslulega að lesa heimspeki...
Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég: Örn og Kristó að "læra"...
Ef ég væri karakter skrifaður af Shakespeare væri ég: pottþétt Rómeó... haha... nei hugsa ekki...
Um þetta leyti á næsta ári: Verð ég að læra fyrir lokapróf, vonandi þau síðustu í MA....
Fyrsta manneskjan sem ég myndi þakka ef ég ynni verðlaun væri: ekki neinum... jújú, konunni minni mjög líklega...
Uppáhaldsmorgunmaturinn minn er: Ristað brauð og tea... svo nóg af skyri og kaffibolli á eftir...
Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup: Til hvers að standa í því... vonandi að maður sé að giftast "þeirri réttu"...
Heimurinn mætti alveg vera án: ég veit ekki... styrjalda...
Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að: bara sleppa því takk fyrir takk...
Bréfaklemmur eru nytsamlegri en: hausinn á mér í því ástandi sem hann er núna...
Ef ég geri eitthvað vel er það: Annað hvort af því ég hef áhuga á því EÐA af því ég gerði það óvart... veðja á það seinna... haha.....
komið nóg í bili, heimspekin kallar í smá tíma í viðbót... svo svefninn hugsa ég...
kv. Böðvar
29. maí 2007 klukkan 01:53
Böðvar Jónsson 7 athugasemdir
jól og ekki jól... það er langt í jólin en fólk er samt farið að skreyta á fullu... langt síðan að búðir fóru að auglýsa jólavörur og svona... ég er mikið fyrir jól og er algert jóla"barn"... en mér finnst þetta full snemt að byrja í nóvember!!! fyrsti des. er góður dagur og finnst mér að þá ætuu allir að kveikja á útiskreytingunum og jafnvel inni... allir í einu... það væri snilld!!!